das bigga

velkomin í heim biggu ;)

21.03.2007 16:13:17 / birgitta

21. mars. 2007

Góðan daginn.

Birgitta er mætt á svæðið aftur hehe. Mér þykir fyrir því hvað ég er búin að vera rosalega rosalega slöpp að blogga. Er alveg búin að hafa nægan tíma en nenni því bara ekki. En það er sem ég er búin að vera að gera síðustu daga er bara lítið sem ekkert, tók mér semsagt aftur pásu úr skólanum (ekki beint það besta) og er núna bara að leita mér að vinnu. Var að íhuga vinnu úti, sótti um vinnu í Danmörku en það er ekki miklar líkur á því að þau þurfa fólk annars þá ætlar Cecilja að reyna að finna hestabúgarð í Danmörku eða Svíþjóð fyrir mig.

 

Reikna nú ekki með því að fara að gera einhvað mikið í dag , örugglega bara liggja í smá leti síðan í kvöld reyna að hitta vin minn :) En á morgun þá er ég að fara að vinna, reyndar bara í uppvaski hjá maður lifandi en það er fínt er bara að fara að vinna þar á morgun, föstudaginn og mánudaginn, verður fínt að fá smá pening :) *happytimes* haha. Síðan reyndar á sunnudaginn þá er ég að fara að hjálpa til í fermingunni hjá litla bróður Sigrúnar, við uppvask aftur hehe, ég er orðin einn eftirsóttasti uppvaskarinn á höfuðborgarsvæðinu haha.  

 

Ég hef alveg rosalega lítið að segja núna..

 

Heyrðu jú ég fór á hestbak á mánudagskvöldið með Svavari. Það var æðislegt, reyndar skítakuldi en bara gaman. Svavar setti mig semsagt á gamla hestinn sinn 17 vetra rauð stjörnóttur hestur, Svavar sagði mér að þetta væri bara mjög rólegur hestur en þegar ég var komin á bak var varla stoppað sko, kraftur í þeim gamla hehe :) Er bara að bíða eftir að hann bjóði mér aftur.

 

En jæja ég ætla að finna mér einhvað að borða reyni að blogga bráðum aftur bæó :***

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 09:33:34 / birgitta

24. desember 2006

Góða daginn..
Jæja þá er aðfangadags morgun, ég er búin að vaka í alla nótt að horfa á friends.. Mjög spennandi, held ég hafi aldrei getað hlegið að sjónvarpsefni ein en ég gat það í nótt.. Það er alveg svakalegt hvað ég var þunn allan gærdag með brjálaðan hausverk og magaverk, ég sver það ég ætla ekki að drekka í langan tíma núna.
Þetta eru held ég fyrstu jólin sem ég er ekki að hoppa mínar hæðir, er voða þung einhvað. Heiðar er svo bara fyrir vestan náði loksins að redda jólagjöfinni hans á föstudaginn :) það var of mikill léttir að hafa loksins fundið hana. Hvernig er svo jólastemningin í fólki?
Veit ekki alveg hvort ég nenni að skrifa mikið meira er voða down.
En ég skrifa kannski aftur á eftir eigiði annars bara góð jól ætla að fara að klára að pakka inn gjöfum núna áður en ég fer í messu að horfa á Victoríu syngja á eftir bæó :**

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 11:42:45 / birgitta

29. nóvember 2006

Góðan og blessaðan...

Ákvað að kasta frá mér eitt stykki blogg fyrst að ég nennti því. Sit núna í stofunni hjá Sollu að passa. Litli kall er veikur, er reyndar sofandi núna, vonum bara að hann nái að sofa eikkað svona fyrir hádegi.

Smá sluður, Högni er að reyna að slá sér upp með Birnu. Tók sinn tíma að sætta mig við það en ég er góð þökk sé samtalinu við Heiðar. Fór á rúntin með þeim í gær á nýja Polonum hans Högna, innilega til hamingju með hann sæti. Vonandi gengur allt upp á milli þeirra sætu. Birna elskan mín er að fara til DK 2 janúar, ekki alveg að sætta mig við það, en hún er sem sagt að fara í skóla út ásamt Önnu Maríu, gangi þeim bara rosa vel úti. Lofa að reyna að kíkja á ykkur!

Ég fann draumabílinn minn síðast liðin laugardag, er búin að vera óð í appelsínu gula peugot 206 sport í nokkuð langan tíma og núna loksins fann ég hann, afhverju fann ég hann ekki þegar ég er orðin 18. Mamma er ekki alveg hlynt því að ég taki lán á honum, segir hann of dýran og svoleiðis. Ég bíð þá bara með bílakaup til 18 ára aldurs. En það fer samt vonandi að styttast í bílprófið mitt.

Jahá, svo fer að styttast í 4 afmæli og jólin, mjög svo dýr desember mánuður. Elskan mín hún Bóel er að verða 17 ásamt Sigrúni, Kollu og Sunnu, loksins segi ég bara! Þið verðið að láta mig vita hvað þið viljið í afmælisgjöf.

Smá fréttir af Heiðari, hann fór semsagt í aðgerð sem heppnaðist mjög vel og var kominn heim af spítalnum nokkrum dögum seinna með fulla heilsu. Skipti síðan Corollunni sinni upp í  Golf Gti turbo á laugardaginn og mjög ánægður með þau kaupa, verður gaman hjá honum að fín pússa þann bíl; setja dvd í hann svo eitthvað sé nefnt.

Hvernig er síðan stemningin fyrir djamm um helgina? Ég sjálf tók því mjög rólega um helgina og stóð engan vegin undir nafni eins og Rannveig vildi meina. Var bara á rúntinum og vídeó glápi sem er reyndar alveg gott og blessað en hvernig væri að taka alveg þokkalega á því núna um helgina? Veit að Birna er game, einhverjir fleirri sem eru ekki búnir að plana djamm með öðrum?

Biggi Blogg kemur síðan á klakan á fimmtudaginn eftir dvöl sína í Svíþjóð, verður gaman að rekast á kappan á djamminu aftur. Fæ síðan karton hjá honum, er samt að hætta að reykja eða reyna eins mikið og ég get!

En jæja þetta er komið alveg þokkalegt blogg hjá mér, ætla að kíkja á litla kallinn sem sefur vonandi í einhvern tíma til viðbótar. Bæó :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 04:53:39 / birgitta

26. nóvember 2006

Góðan daginn.
Þetta hefur verið alveg svakalega pirraður dagur hjá mér. Ætla ekki að fara mjög nákvæmlega út í þessa hluti. En eins og nokkrir vita og hefur komið fram áður þá er ég skráð inn á bílaspjall síðuna Live2Cruize allt gott og blessað með það. Er búin að vera að kommenta mjög lítið inn á spjallið en síðan er verið að tala um Ungfrú Live2Cruize, ég kommenta einhvað smá um þetta síðan allt í einu er ein kona/stelpa sem kallar sig SheDevil sem er reyndar eitthvað yfir spjallinu, farin að hella sig yfir mig :S veit ekki alveg hvað var málið með það, Diddi giskaði á að hún væri bara á túr (karlmenn alltaf eins, haha).
Ég og ákveðin aðili fórum aðeins að rífast áðan, mjög sárt, en ekkert sem ég kemst ekki yfir. En ef þú skoðar þetta þá bara fyrirgefðu mér innilega, ekki alveg með það á hreinu hvað ég gerði eða sagði til að gera þig svona pirraðan. En mér þykir þetta mjög leitt og ég vona að þú viljir ræða þetta við mig. :(
En jámm í dag gerði ekkert voða mikið, svaf til um 12 þá kom mamma og Fía litla með smá dót til mín. Síðan um 4 minnir mig þá kom Heiðar óvænt að ná í mig fórum aðeins á rúntin, síðan var haldið heim á leið og aðeins horft á sjónvarpið. Um kvöldið fór ég síðan á rúntin með Rannveigu, Birnu og Magga það var alveg stuð sko :) takk fyrir rúntin stelpur :D en síðan á rúntinum þá reifst ég við þennan ónefnda aðila. Og síðan núna sit ég bara að horfa á sjónvarpið. Á morgun verð ég nú eiginlega að taka til í herberginu mínu og reyna að koma með mun betur fyrir, alveg komin tími til...
En ég ætla að halda áfram að horfa á sjónvarpið góða nótt fyrir ykkur sem eru ekki sofnuð og góðan daginn fyrir ykkur sem fara að vakna :*

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 20:49:01 / birgitta

21. nóvember 2006

Góða kvöldið..
Jæja endilega allir að fylla þetta dæmi hér fyrir neðan út.. og senda það í commentum!

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Annars hef ég bara ekkert að segja. Blogga kannski þokkalega færslu á morgun, bæó :*

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 11:49:15 / birgitta

21. nóv 2006

FAKE FRiENDS: Never ask for food.
REAl FRiENDS: Are the reason you have no food.
FAKE FRiENDS: Call your parents Mr/Mrs.
REAl FRiENDS: Call your parents DAD/MOM.
FAKE FRiENDS: Bail you out of jail and tell you what you did was wrong. REAl FRiENDS: Would sit next to you sayin "Damn ... we fucked up ... but that shit was fun!"
FAKE FRiENDS: Never seen you cry.
REAl FRiENDS: Cry with you.
FAKE FRiENDS: Borrow your stuff for a few days then give it back.
REAl FRiENDS: Keep your shit so long they forget its yours.
FAKE FRiENDS: Know a few things about you.
REAl FRiENDS: Could write a book about you with direct quotes from you.
FAKE FRiENDS: Will leave you behind if that is what the crowd is doing. REAl FRiENDS: Will kick the whole crowds ass that left you.
FAKE FRiENDS: Would knock on your front door.
REAl FRiENDS: Walk right in and say "I'M HOME!"
FAKE FRiENDS: Are for awhile. REAl FRiENDS: Are for life.
FAKE FRiENDS: Will take your drink away when they think you've had enough.
REAl FRiENDS: Will look at you stumbling all over the place and say "Bitch drink the rest of that you know we don't waste shit."
FAKE FRiENDS: Will talk shit to the person who talks shit about you. REAl FRiENDS: Will knock them the fuck out.


núna er það bara að finna út hver er hvað :S

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 06:20:07 / birgitta

14. nóvember 2006

Góðan og blessaðan daginn...
Mér langar reyndar alveg svakalega að hoppa yfir þennan dag.. Þannig er mál með vexti að á fimmtudaginn síðast liðin þá féll annað lungað í Heiðari saman, engin ástæða. Og í dag er hann að fara í uppskurð, var mikið að spá í að fara á Basshunter tónleikana en veit ekki hvort að það væri rétt af mér að gera. Er reyndar að fara til hans um svona 9 leytið og verð alveg hjá honum þar til hann fer uppskurðin og vonandi verð ég enþá á spítalanum þegar hann verður búinn. Þetta er ekkert smá erfitt að fara í gegnum, er með svo svakalega spítala fóbíú en hvað gerir maður ekki fyrir þá sem manni þykir vænst um.
Ég er ekki mikið búin að blogga upp á síðkastið er náttúrulega búin að vera að uppi á spítala, að vinna eða sofandi. Á mér engan vegin líf lengur.
Ég er svo engan vegin í stuði fyrir desember mánuð núna, 3 afmæli (Bóel, Sigrún og Kolla), jólagjafir (reyndar ekki það margar) og síðan 1-2 ferðir vestur á Ísafjörð til Heiðars þar sem að hann ætlar vestur með mömmu sinni strax og hann losnar af spítalanum. Vá, það verður ekki auðvelt að vera svona langt í burtu frá honum, á erfitt með að fara heim á kvöldin, líður hálf illa að sjá hann liggja bara þarna einn. Ég vissi ekki að það tæki svona svakalega á tilfinningarnar að horfa upp á einhvern sem manni þykir svona vænt um upp á spítala. Mjög erfitt að hemja tárin þegar ég er hjá honum. Verð örugglega agaleg á morgun hehe, þá er ágætt að Bóel og Árni búa rétt hjá spítalanum þannig að ég get knúsað hana.
Áðan þegar ég var búin að vera upp á spítalanum þá fór ég til Bóelar og við fórum á Núðluhúsið að fá okkur að borða, vá hvað það er góður matur þarna, ég er ekki búin að borða neitt almennilegt í nokkra daga þannig að þetta var æði. Síðan er ég bara búin að liggja fyrir framan tölvuna að horfa á Americas Next Top Model 7 seríu. Náði að sofna í nokkra tíma.
En ég ætti kannski að reyna að sofa aðeins meira ef ég á að geta vakað þarna hjá honum á eftir hehe.. Heyrumst seinna bæ :*

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 23:11:37 / birgitta

30. október 2006

Hérna fyrir neðan eru nokkrar mynda syrpur síðan á föstudaginn síðasta, sést kannski hvað var ömurlega leiðinegt hjá okkur.

Bigga sætaSMIiiiiiiiileheheOmg.

myndasyrpa af mér.. voða voða gaman hehemm.

eg eiikkað að hughreista..SmileSmilemongo

Það mætti halda að Tinna hafi verið í símanum allt kvöldið.  Nema þegar ég fékk smá bros frá henni þarna í lokin, mongo haha.

Heiðar að deyja úr ölvun yfir ógó Heiðar að deyja úr ölvun yfir ógó Heiðar að deyja úr ölvun yfir ógó Heiðar að deyja úr ölvun yfir ógó

Heiðar var svona allt kvöldið haha.. alltaf jafn gaman hjá honum, erum ekki enþá viss hvort að þetta hafi verið þreyta eða ofur ölvun.

Jæja núna er komið smá svona vikuplan hjá mér. Á morgun er ég að fara að vinna pínu hjá afa og svo fara upp í FÁ að kaupa miða á Peruballið.

Miðvikudaginn: það er spurning hvort að ég fari að vinna hjá afa eða hvort ég verð bara í leti þar til að ballið byrjar, það verður svo gaman, og það verður svo mikið fyllerí!

Fimmtudaginn: sofa af mér þynnku og vinna síðan frá 18:00 til eitthvað.

Föstudaginn: sofa vel vegna þreytu, fara að vinna kl. 18:00 til um 24:00 fara svo vonandi á djammið með Tinnu minni fallegu :D

Laugardaginn: sofa vel út. Vinna frá 18:00 til um 24:00 svo líklega bara djamm aftur haha..

Sunnudaginn: sofa vegna þynnku vonandi og vinna svo frá 18:00 til um 24:00

Þetta er líf mitt í hnotskurn ef það má segja. Boring I know. EN vitiði sjónvarpið er að kalla.. góða nótt :****


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 14:39:59 / birgitta

29. október 2006

Hæhæ

Jóhanna mín þetta er þá líklega 4 bloggið í ár og vonandi verða þau fleirri. Ég er búin að blogga nokkrum sinnum en þau hafa ekki komið inn og ég vistaði þau ekki, snillingur, ég veit.

Heyrðu nú er kella komin með vinnu í Perlunni, fimmtu hæð. Er semsagt að þjóna þar. Er einmitt að fara að vinna á eftir fjórða kvöldið í röð, tæpt að ég nenni því, en það má ekki hugsa svona. Er semsagt að vinna þar nokkur kvöld í viku frá 18:00-24:00.

Í gær var ég að vinna til rétt yfir 24:00, það var víst staffa party en ég var rosalega þreytt og með rosa hausverk þannig að Heiðar kom bara til mín og við horfðum bara á sjónvarpið í staðin, það var voða nice. Komst líka að því í gær að ég kann EKKI að elda, bara ekki séns. Ætlaði að fá mér hrært egg og viti menn ég gat ekki gert það. Endaði með að sjóða mér spagettí með sjöri og hvítlaukskryddi, askoti gott bara. En ef einhver býður sig fram í að elda fyrir mig á kvöldin endilega láta mig vita hahaha...

En jæja best að hoppa í sturtu og gera sig sæta fyrir Heiðar, plataði hann í að bjóða mér að borða áður en ég fer að vinna kl. 18:00. Þannig að bless í bili :*

Birgitta Ragnarsdóttir (rauðherð)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 15:48:14 / birgitta

28. september 2006

Góðan og blessaðan daginn (til þeirra fáu sem lesa þetta enþá) Ég sit núna bara heima hjá Heiðari mínum að láta mér drepleiðast. Þoli ekki þegar ég er ekki að vinna. Ég er semsagt komin alveg endanlega í bæinn aftur :D Er mjög líklega komin með vinnu á Café Blue í kringlunni. Þannig að bara pppaaarrrtttyyy...! haha Tinna elskan mín er líka komin í bæinn þannig að ég er bara í góðum málum hvað varðar djammið ;) Jæja kallinn er komin heyrumst bæó :*

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 15:03:12 / birgitta

2. júlí 2006

Góðan daginn
Long time no see.. Ég er að velta því fyrir mér hvort að ég nenni að byrja að blogga aftur.. Alveg á mörkunum að ég nenni því hehe, en ég hef svo sem ekkert betra að gera.
Ég verð að vinna í sumar á Hótel Búðum á Snæfellsnesi. Er búin að vera að vinna þar í 5-6 vikur. Mjög ánægð er að vinna sem þerna og þjónn. Ég mæli með því fyrir fólk að fara út á land að vinna það er svo gott fyrir flesta. Gott að komast í burtu frá öllu stressinu í rvk. Ég er reyndar í bænum núna og er búin að vera hérna síðan á fimmtudaginn fer reyndar vestur á morgun. Ég er búin að skemmta mér alveg þokkalega um helgina.. Reyndar aðeins of ölvuð á föstudaginn, fer kannski betur út í það seinna en í gær þá var ég bara róleg fór í kveðjuparty hjá Björgu (hún er að fara til Noregs í 3 vikur) En ég ætla að plata einhvern út að gera eitthvað sniðugt. reyni að blogga bráðum aftur. Bæó :*

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 22:57:45 / birgitta

30 janúar 2006

Góða kvöldið,

Jæja þá er maður aðeins búin að jafna sig eftir þetta leiðinda kast um daginn. Er bara helvíti happy núna :) Búið að vera ágætlega mikið að gera og svona þannig að maður hefur ekki tíma til að vera einhvað pirraður. En já ég er semsagt að fara að taka þátt í innan skóla söngvakeppni framhaldsskóla, ásamt Lísbeti og Foldu.. Það fyndna er að við kunnum ekki að syngja, samt erum við ekkert falskar. Ætlum að taka lagið Hit the road Jack eftir Ray Charles. Ágætislag bara. Keppnin er semsagt á fimmtudaginn og ég er alveg að skíta á mig (óbókstaflega).

Ég hef reyndar voða lítið að segja að venju er bara einhvað skrýtin þessa daganna, einhvað mikið sem ég er að spá og spögulera í :) sem er bara gott og gaman. Síðan fær maður útborgað á miðvikudaginn.. spennó :P er að deyja mig langar svo í eitt par af skóm sem ég sá um daginn geggjað flottir svona glimmer einhvað bling, bling, ching, ching klassískt ég haha :P

En jæja ég ætla að fara að klára þessa blessuðu félagsfræði ritgerð :P þannig að bara bæó og góða nótt :*


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 00:02:01 / birgitta

25. janúar 2006

Djöfull er ég komin með ógeð á þessu öllu, mig hefur ekki liðið jafn illa í langan tíma. Ég þoli þetta ekki lengur. Er að vinna alltof fokking mikið, á engan pening, er örugglega fallin aftur í skólanum, er stórskuldug, er bara fokking misheppnuð!

Ég sakna gamla lífs míns. Þetta er alveg vonlaust, er ekki að meika það. Kannski er þetta bara sjálfsvorkun eins og einhver sagði eða að leika fórnarlamb. En það er ekkert auðvelt þegar allt sem maður hafði hverfur frá manni.

"You never know what you have till you lose it" þetta er svo alveg satt.

Í alvörunni talað ég sit inn í herberginu mínu ein, grátandi að vonast til að einhver komi og bjargi mér. Bjargi mér frá sjálfri mér. Þetta er allt mér sjálfri að kenna, ég er að grafa mína eigin gröf býst ég við. Síðan er ég svo mikil gunga að ég get ekkert lagað það sem er að..

Æjh ég er farin að sofa bara bæ


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 15:42:59 / birgitta

13. janúar 2006

Góðan daginn..

Jæja, smá tilkynning.. Ég er að leita að hestinum mínum, ég næ ekki símasambandi við Davíð manninn sem er með hann í haga. Þetta er semsagt brúnskjóttur klár á 9unda vetri, meðal hár og mjög fallegur, hendi inn mynd þegar ég finn eina. Endilega skrifið mér bara e-mail eða í comment.

Í gær þá fór ég upp í Mosfellsdal á hestbak með Lísbeti vinkonu minni úr FÁ. Var sett á svaka gæðing að nafni Rökvi. Rosa myndarlegur brúnn og stór hestur. Hann var ágætlega klárgengur og ég finn aðeins til í rassinum hehe. En þetta var rosalega gaman. Þegar ég var yngri og var ný búin að fá Keikó þá var ég alltaf að ríða út hjá Laxnesi upp í Mosfellsdal og ég rakst mjög oft á afa Lísbetar en ég vissi ekki að þetta væri afi hennar þá, þekkti hana heldur ekki neitt. En síðan þegar við mættum í gær þá byrjar amma hennar að spyrja mig bíddu varst það ekki þú sem varst á skjótta klárnum og afi hennar spurði nákvæmlega það sama, hehe. Hann er svo mikið bjútí hann Keikó að hann festist alveg í hausnum á fólki hehe.. En afi hennar vildi endilega bara kaupa hann og bauð mér hesthúsapláss hjá sér. Ég sem ætlaði ekki að taka í hús í vetur varð rosa spennt fyrir þessu og er núna bara að reyna að ná á Davíð þannig að ég fái að vita nákvæma staðsettningu Keikós.

Djöfull þoli ég ekki svona rugl.

Núna á eftir er ég að fara að vinna 17-24 síðan er ég að íhuga hvort ég ætli einhvað á rúntinn eða ekki.. ekki alveg viss.

Á morgun er ég að vinna frá 17-24, síðan ætla ég að finna einhvað party eða einhvað skemmtilegt. Og svo á sunnudaginn þá er ég líka að vinna 17-24 síðan bara heim að sofa.

en ég hef voða lítið meira að segja bara geðveikt pirruð þannig að bæó :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 00:23:24 / birgitta

10/11 janúar 2006

Góða kvöldið..

Ég hef nú voða lítið að segja. Jú ég er komin með svaka bíladellu, dont ask me why. Skráði mig einmitt á L2C hehe, dont ask me why again :P en athyglin sem maður fær wow.. er svona að pæla hvort að ég ætti að fara á næstu samkomu.. en allavegana nóg um bíla einhvað..

Fór í dag í fyrsta almennilega skóladaginn minn, bara helvíti fínt að vera komin aftur :) skemmtilegir krakkar og svona. En dísus hvað ég sé eftir að hafa fallið á stærðfræði, fór semsagt í stærðfræði í dag og ég gat helvítis allt.. allir hinir sátu bara einhvað að bora í nefið á sér. :evil: ég var alveg brjál þegar ég fattaði að ég kunni þetta. En svona er þetta bara, maður lærir víst af mistökum.

Síðan á morgun þá er skóli til 16:40 minnir mig síðan vinna kl 17-24 dísus.. síðan líka vinna föst, laug og sunn allt frá 17-24 síðan mán 21:30-24 eins gott að ég fái einhvern pening fyrir þetta :klikk: múhahaha.. djók

en já svona að lokum þá fann ég þennan bíl á netinu þetta er breyttur svona bíll eins og mig langar í. Mig langar semsagt í Peugeot 206 XS sport.. orange eða svartan.. en þessi er skondin, liturinn alveg snilld svona candy floss.. felgurnar bara flottar :)

en já góða nótt :*


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11